
Spilun miðlunarskráa
Til að spila miðlunarskrá í RealPlayer skaltu velja
Valkostir
>
Opna
og
eftirfarandi:
Nýjustu skrár
— til að spila miðlunarskrár sem nýlega hafa verið spilaðar
Vistaða skrá
— til að spila miðlunarskrár sem vistaðar eru í símanum eða
á minniskortinu
Til að straumspila efni:
• Veldu straumspilunartengil sem er vistaður í galleríinu.
Komið er á tengingu við straumspilunarmiðlarann.
• Opnaðu straumspilunartengil á meðan þú vafrar á vefnum.
Til að straumspila efni verðurðu fyrst að setja upp stillingar fyrir
sjálfgefinn aðgangsstað þinn. Sjá „Aðgangsstaðir“ á bls. 91.

M i ð l u n g a g n a
63
Margar þjónustuveitur fara fram á að þú notir internetaðgangsstað
(IAP) sem sjálfgefinn aðgangsstað. Aðrar þjónustuveitur leyfa notkun
WAP-aðgangsstaða. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Aðeins er hægt að opna rtsp:// vefföng í RealPlayer. Það er ekki hægt
að opna http:// vefföng. Hins vegar ber RealPlayer kennsl á http-tengil
sem vísar í .ram-skrá þar sem .ram-skrá er textaskrá sem inniheldur
rtsp-tengil.
Viðvörun: Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu þegar hátalarinn
er notaður því hljóðstyrkur getur verið mjög mikill.