Nokia 3250 - Spjall

background image

Spjall

Spjall (sérþjónusta) gerir þér kleift að hafa samband við annað fólk með
því að nota spjallskilaboð og taka þátt í umræðuhópum (spjallhópum)
þar sem rætt er um ákveðin málefni. Þegar þú hefur skráð þig í
spjallþjónustu getur þú skráð þig inn á spjallmiðlara þjónustuveitunnar.

Upplýsingar um spjallþjónustu, verðlagningu og gjaldskrá veitir
símafyrirtækið eða þjónustuveitan. Þjónustuveitur veita einnig
leiðbeiningar um hvernig nota eigi þjónustu þeirra.

Til að fá aðgang að spjallþjónustu verður þú að vista stillingarnar fyrir þá
þjónustu. Þú getur e.t.v. fengið stillingarnar frá símafyrirtækinu eða
þjónustuveitunni sem býður upp á þjónustuna í samskipanaboðum. Þú
getur einnig slegið inn stillingarnar handvirkt. Sjá „Stillingar fyrir spjall“
á bls. 109.