Nokia 3250 - Kallkerfi

background image

Kallkerfi

Í kallkerfi (sérþjónusta) er um að ræða símtal yfir kallkerfisþjónustu
í rauntíma (sérþjónusta) sem komið er á með GSM/GPRS-símkerfi.
Í kallkerfinu er komið á beinu talsambandi með því að styðja á takka.
Nota skal kallkerfið til að tala við einn aðila eða hóp manna.

Áður en kallkerfisþjónusta er tekin í notkun þarf að tilgreina
aðgangsstað þjónustunnar og stillingar fyrir kallkerfið. Þú kannt að

background image

T e n g i n g a r

117

fá stillingarnar sendar sem samskipanaboð frá símafyrirtækinu eða
kallkerfisþjónustuveitunni.

Í samskiptum gegnum kallkerfið talar einn aðili en hinir hlusta gegnum
innbyggða hátalarann. Notendur skiptast á að svara hver öðrum. Þar
sem aðeins einn aðili getur talað í einu fær hann tiltekinn hámarkstíma.
Hámarkstíminn er venjulega 30 sekúndur. Hafðu samband við
símafyrirtækið eða þjónustuveituna til að fá upplýsingar um hvaða
hámarkstíma símkerfið veitir.

Símtöl hafa ávallt forgang fram yfir samtöl um kallkerfi.

Að pakkagagnateljaranum undanskildum skráir síminn aðeins tveggja
manna tal í listanum yfir nýleg símtöl í

Notkunarskrá

. Þátttakendur í

samtali ættu að staðfesta móttöku samskipta þar sem það á við þar
sem ekki er um aðra staðfestingu að ræða á því að þeir hafi heyrt
hringinguna.

Símafyrirtækið eða þjónustuveitan veitir upplýsingar um framboð,
kostnað og áskrift að þjónustunni. Hafa ætti í huga að reikiþjónusta
kann að vera takmarkaðri en gerist með símtöl um heimasímakerfið.

Hægt er að nota aðrar aðgerðir símans þegar kallkerfið er í notkun.
Mikill hluti þeirrar þjónustu sem stendur til boða í hefðbundnum
símtölum (svo sem talhólf) er ekki til staðar í samskiptum um kallkerfi.