■ Stjórnandi forrita
Þú getur sett upp tvenns konar forrit og hugbúnað í símanum þínum:
J2ME
TM
forrit byggð á Java
TM
tækni með endingunni .jad eða
.jar. Ekki hlaða niður PersonalJava
TM
forritum í símann þar sem
þú getur ekki sett þau upp.
Önnur forrit og hugbúnaður sem henta Symbian-stýrikerfinu.
Uppsetningarskrárnar hafa endinguna .sis. Settu aðeins upp
hugbúnað sem er sérstaklega hannaður fyrir símann.
Hægt er að flytja uppsetningaskrár í símann þinn frá samhæfðri tölvu,
hlaða þeim niður meðan þú vafrar eða senda þær til þín sem
margmiðlunarboð, sem tölvupóstsviðhengi eða með Bluetooth-
tengingu. Þú getur notað Nokia Application Installer í Nokia PC Suite til
að setja upp forrit í símanum eða á minniskorti.
Til að opna
Stjórn. forrita
skaltu velja
Valmynd
>
Verkfæri
>
Stj. forrita
.