
Símtöl
Veldu
Valmynd
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Hringing
og úr eftirfarandi
valkostum:
Senda mitt númer
(sérþjónusta) — til að símanúmerið þitt birtist (
Já
) eða
birtist ekki (
Nei
) þeim aðila sem þú hringir í. Einnig getur gildið verið
stillt af símafyrirtækinu eða þjónustuveitunni þegar númer er fengið
(
Stillt af símkerfi
).
Símtal í bið
(sérþjónusta) — til að símkerfið láti þig vita ef hringt er í þig
á meðan þú ert að tala í símann. Til að senda beiðni til símkerfisins um

V e r k f æ r i
90
að gera símtal í bið virkt skaltu velja
Gera virkt
. Til að senda beiðni
til símkerfisins um að gera símtal í bið óvirkt skaltu velja
Ógilda
.
Til að kanna hvort þjónustan er virk skaltu velja
Athuga stöðu
.
Hafna símtali með SMS
— til að hægt sé að hafna símtali með
textaskilaboðum. Sjá „Símtali svarað eða hafnað“ á bls. 26.
Texti skilaboða
— til að slá inn texta sem á að senda í textaboðum þegar
þú hafnar símtali.
Sjálfvirkt endurval
— til að láta símann gera allt að tíu tilraunir til að
hringja aftur í númer sem ekki náðist samband við. Styddu á hætta-
takkann til að gera sjálfvirka endurvalið óvirkt.
Samantekt e. hring.
— til að láta símann birta í stutta stund áætlaða
lengd síðasta símtals
Hraðval
>
Virkt
— til að láta símann hringja í númerin sem úthlutað
hefur verið á hraðvalstakkana 2 til 9 með því að halda inni viðkomandi
talnatakka
Takkasvar
>
Virkt
— til að geta svarað símtölum með því að styðja á
hvaða takka sem er, fyrir utan hægri valtakkann, rofann og hætta-
takkann
Lína í notkun
(sérþjónusta) — þessi stilling sést aðeins ef SIM-kortið
styður tvö númer í áskrift, þ.e. tvær símalínur. Veldu hvora símalínuna
(
Lína 1
eða
Lína 2
) þú vilt nota til að hringja og senda skilaboð. Hægt er
að svara símtölum á báðum línum, án tillits til þess hvor línan er valin.
Þú getur ekki hringt ef þú velur
Lína 2
og ert ekki áskrifandi að þeirri
sérþjónustu.
Til að hindra val á línum skaltu velja
Línuskipting
>
Gera óvirka
ef
SIM-kortið styður það. Til að breyta þessari stillingu þarftu að hafa
PIN2-númerið.