■ Raddskipanir
Þú getur hringt í tengiliði og notað valmyndir símans með því að bera
fram raddskipanir.
Til að ræsa aðgerðir símans með raddskipunum skaltu velja
Valmynd
>
Verkfæri
>
Raddskipanir
. Raddskipanir til að skipta um snið eru í
möppunni
Snið
.
Til að ræsa nýja raddskipun fyrir forrit skaltu velja
Valkostir
>
Bæta við
forriti
og forritið.
Til að halda utan um raddskipanirnar skaltu skruna að aðgerð og velja
Valkostir
ásamt einhverju af eftirfarandi:
Breyta skipun
eða
Fjarlægja forrit
— til að breyta raddskipun valinnar
aðgerðar eða gera hana óvirka
Spila raddskipun
— til að spila raddskipunina
Upplýsingar um notkun raddskipana er að finna í „Raddstýrðar
hringingar“ á bls. 25.
Til athugunar: Notkun raddmerkja getur verið erfið í hávaðasömu
umhverfi eða í neyðartilvikum, því ætti ekki að treysta eingöngu á
raddstýrt val við allar aðstæður.
Til að breyta stillingum raddskipunar skaltu velja
Valkostir
>
Stillingar
og úr eftirfarandi valkostum:
Hljóðgervill
— til að gera hljóðgervilinn, sem ber fram þekktar
raddskipanir, virkan eða óvirkan
Núllstilla raddaðlögun
— til að núlstilla raddaðlögun. Síminn aðlagar sig
rödd notandans til að eiga auðveldara með að þekkja raddskipanirnar.