Grunngjaldmiðill og gengi skráð
Áður en þú getur umreiknað gjaldmiðil þarftu að velja grunngjaldmiðil
(yfirleitt gjaldmiðill heimalands notenda) og tilgreina gengi.
Gildi grunngjaldmiðilsins er alltaf 1. Grunngjaldmiðillinn ákvarðar gildi
umreikningsins fyrir aðra gjaldmiðla.
1. Veldu
Gjaldmiðill
sem gerð umreikningsins og síðan
Valkostir
>
Gengisskráning
. Listi yfir gjaldmiðla opnast og grunngjaldmiðillinn
birtist þar efstur.
2. Til að breyta grunngjaldmiðlinum skaltu skruna að gjaldmiðlinum
(vanalega gjaldmiðill heimalandsins) og velja
Valkostir
>
Nota s. gr.
gjaldm.
.
3. Bættu við gengi, skrunaðu að gjaldmiðlinum og sláðu inn nýtt
gengi (þ.e. hversu margar einingar af gjaldmiðlinum samsvara
einni einingu af grunngjaldmiðlinum sem þú valdir).
4. Eftir að þú hefur slegið inn nauðsynlegar gengisskráningar getur
þú umreiknað gjaldmiðla. Sjá „Umreiknun eininga“ á bls. 79.
Til athugunar: Þegar grunngjaldmiðli er breytt verður að færa
inn nýtt gengi því allar fyrri gengistölur hafa verið núllstilltar.